Niðurstaða Aganefndar í Stóra HrísamálinuStóra Hrísamálið
Málavextir.
Sakborningarnir; Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Halldór Sigfússon.
Fórnarlömb; Elvar Logi Friðriksson og Fanney Dögg Indriðadóttir
Guðrún Ósk og Halldór óku dökkri Bensbifreið að bænum Hrísum í Fitjárdal, fóru þar inn í íbúðarhús í leyfisleysi, þar sem húsráðendur höfðu skroppið af bæ. Þegar inn var komið hófust þau handa við að máta nærföt af heimilsfólkinu, borðuðu allt kornflexið þeirra, földu fjarstýringar í nærfataskúffu Fanneyjar, gerðu tvo lítra að mjólk ódrykkjarhæfa með því að blanda út í hana appelsínusafa, stríddu hundinum Össu, prufuðu tannburstana og svona mætti lengi telja. Af þessu loknu héldu þau upp í hesthús þar sem versta verkið var unnið því þau styttu í ístöðunum á hnakknum hennar Fanneyjar.
Nokkrum dögum seinna sendu sakborningarnir bréf í pósti rituðu á erlendu tungumáli, það þótti Loga háalvarlegt mál þó hann skyldi ekki bréfið. Fékk þá Logi aðstoð, hringdi í Hemma heimskautabangsa, hann kom akandi á ofsahraða með blikkandi ljós í Hrísa og varð strax ljóst hve alvarleiki málsins væri mikill er hann skynjaði óttann og skelfinguna á andlitum heimilisfólksins. Hemmi las bréfið og skyldi ekkert frekar en Logi, en vissi að þetta var ekki gott því bréfið kom úr borg óttans (Reykjavík).
Játningar liggja fyrir hjá sakborningum og hafa þau beðist afsökunar og iðrast mjög að hafa hrætt heimilisfólkið að Hrísum þannig að þau sváfu ekkert í viku.
Niðurstaða
Að lokinni geðrannsókn sem leiddi í ljós að sakborningarnir eru vart sakhæf vegna greindarskorts og andlegs vanlíðan er ekki hægt að dæma þau til fullrar refsingar.
Og er því kröfu Gunnars Þorgeirssonar vísað frá enda krafa þessi afleiðing af þungu höfuðhöggi sem hann hlaut á heimili sínu seint í síðasta mánuði.
Dómur;
Nálgunarbann; Þurfa að halda sig að lámarki í 500 metra fjarlægð frá Hrísum.
Halldóri er gert skylt að keppa á öllum mótum Húnvetnsku liðakeppninnar.
Guðrúnu gert skylt að reyna að vera skemmtileg.
Þau í sameiningu skulu hreinsa upp allan skít af gólfi reiðhallar á meðan á mótum stendur í samráði við húsvörð eða mótsstjóra. Og sinna samfélagsþjónustu fyrir Hestamannfélagið Þyt allaf þegar þau eru beðin.
Brjóti þau gegn dómi þessum er hægt að grípa til þyngstu refsingar. Sem er flenging á opinberum vettvangi.
Að lokum;
Þá eiga öll dýrin í skóginum að vera vinir.
Aganefnd Húnvetnsku liðakeppninar 3. febrúar 2009

