Kćru Ţytsfélagar, Forseti Íslands og ađrir velunnararStóra Hrísamáliđ


Í ljósi liðinna atburða hef ég tekið ákvörðun sem er mér þvert um geð. Ég iðrast. Ég mun seint skilja hvaða gassagangur hljóp í mig laugardagskvöldið 24.jan sl. en það ætti öllum að vera ljóst að þarna var ekki ég að verki, heldur minn innri maður. Ég heiti því að eitthvað þessu líkt geri ég aldrei aftur í komandi framtíð, allavegana ekki á laugardeginum 24.janúar, en hann ku næst bera upp árið 2015 á mánudegi. Mér þykir afar leitt að hafa valdið vinum mínum, já eða fyrrum vinum mínum frá Hrísum II, þeim Elvari Loga Friðrikssyni kt. 300884-3939 og Fanney Dögg Indriðadóttur kt. 191186-3629 og fjölskyldum þeirra, ómældu tjóni jafnt andlega sem líkamlega og vona að það grói um heilt þegar fram líða stundir. Verst þykir mér þó að hafa afvegaleitt og flækt liðstjóra liðs 1, inn í málið. Eins og allir vita myndi hún allsgáð, ekki gera nokkrum manni mein en í sakleysi sínu og blindni fylgdi hún mér sem skugginn er við tróðum glapstíginn. Af þessu tilefni vil ég biðja foreldra hennar þau Steinbjörn Tryggvason kt. 170759-5089 og Elínu Írisi Jónasdóttur kt. 020363-7119, innilega afsökunar á hegðun minni og lofa að draga aldrei litla saklausa hjartagullið þeirra niður á mitt plan framar.


Ég hef ákveðið að gera allt til að leita sátta við guð og menn. Af því tilefni hef ég ákveðið að stíga til hliðar og setja sjálfan mig í ótímabundið agabann sem útilokar þátttöku mína í Húnvetnsku liðakeppninni. Ég tel að með þessu sé ég að axla ábyrgð bæði á gjörðum mínum í stóra Hrísamálinu og einnig þátt minn í íslenska bankahruninu. Ég veit að þetta eru gífurleg vonbrigði og mikið tjón fyrir mitt lið þar sem ég er nýfarinn að greina mun á brokki og tölti, en ég vona að liðsfélagar mínir virði þessa ákvörðun og veit það þetta kemur til með að jafna keppnina til muna.

Megi besta liðið vinna.

 

Virðingarfyllst,

Halldór Sigfússon

Kt. 261078-4659

Skóstærð: 44

Þyngd: Enn of mikil.     

Athugasemdir

1
Elín Íris skrifar:
Þér er hér með fyrirgefið Dóri og ég lýsi því hér með opinberlega yfir að ég vil fá þig sem tengdason ! Í Guðs bænum taktu við stúlkunni sem fyrst, hef af henni áhyggjur og hún hefur eins og ég smekk fyrir bústnum karlmönnum. Áfram lið nr. 1 !!
04. febrúar 2009 klukkan 14:42
2
Kolla skrifar:
Ætlar þú að fá Kost í láni í liðakeppnina? Þú átt að keppa vinur...
04. febrúar 2009 klukkan 19:14
3
Eydís skrifar:
Híhí... hvenær kemur að því að þið byrjið bara saman... En já þér er fyrirgefið minn kærasti kæri... :):):)
04. febrúar 2009 klukkan 19:29
4
Kolla skrifar:
Gleymdi einu, þessi mynd af ykkur fegðum eða bara ÆÐI:)
04. febrúar 2009 klukkan 19:30

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Gagnasafn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...