Yfirlýsing frá liðstjóra liðs IStóra Hrísamálið

 
Til þeirra er málið varðar, og já ykkar hinna sem eru búin að velta þessu til og frá í huga ykkar.

Ég sest hér niður með það eitt að leiðarljósi, að segja hlutina eins og þeir eru og alls ekki fela neitt. Vissulega er rétt að ég er brotleg í þessu máli og mun ég án efa sæta ábyrgðar áður en langt um líður.  Mig langar hins vegar að útskýra aðeins hvað vakti fyrir mér þessa umræddu nótt og hvað varð til þess að ég lét tilleiðast að taka þátt í þessu sakamáli.

Það hefur eftir vill ekki farið fram hjá neinum að ég hef gengið með grasið í skónum á eftir Halldóri Sigfússyni, kt. 261078-4659, skóstærð 44, þyngd alltof mikið, síðan land byggðist. Í rælni minni og sakleysi hélt ég að þátttaka mín í þessum voðalega verknaði myndi fá hann til þess að sjá mig í öðru ljósi. 

Þegar hann hafði samband við mig þetta umrædda kvöld var ég mjög veik fyrir, enda búin að horfa á heila tvo þætti af Bold and the Beautiful og orðin þess fullviss að ég myndi enda eins og Sally Spectra. Halldór bað mig að koma með sér í þennan leiðangur og vissulega hélt ég að um rómantískan bíltúr væri að ræða, en annað kom á daginn.  Þegar hann gerði mér grein fyrir fyrirætlunum sínum þorði ég ekki annað en að leika með.  Ég gerði mér ljóst að þarna var ég inni í afdölum, lokuð í litlum kofa með glæpamanni. Á þessum tímapunkti var ekki annað hægt, þetta var vissulega spurning um líf eða dauða, síminn minn var batteríslaus og inneignarlaus, svo mér voru öll sund lokuð.  Eftir að glæpurinn var framinn lofaði hann mér öllu fögru, hann ætlaði að kaupa allt sem mig langaði í, bara svo lengi sem ég myndi þegja.  Það hef ég og gert, en ekki enn farin að fá neitt af því sem mig langaði í.

Eftir að hafa skýrt út mína hlið á þessu máli vona ég heitt og innilega að þessu máli fari að ljúka. Fanney Dögg Indriðadóttir kt. 191186-3629 og Elvar Logi Friðriksson kt. 300884-3939 eru vonandi ennþá góðir vinir mínir og þykir mér mjög leitt að bera hluta ábyrgðar á öllum þeim kvölum sem þau hafa þurft að þola vegna þessa.  Geri ég mér fyllilega grein fyrir að það hefur verið mikið sálarstríð sem þau hafa gengið í gegnum þessa daga áður en glæpurinn var upplýstur og vona ég að þau hafi fengið alla þá hjálp sem þau þurftu til að jafna sig á sál og líkama.

 

 

Virðingarfyllst

Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir

Kt. 2608853089

Skóstærð. 38-39

Þyngd. 52 kg

Hjúskaparstaða.  EINHLEYP!!!!

Athugasemdir

1
oggi gunn skrifar:
Skammastu þín. Ruglaðist þú ekki með þyngdina átti þetta ekki að vera 72
03. febrúar 2009 klukkan 23:32
2
Guðrún Ósk skrifar:
Nei ég er nokkuð viss á minni sök hvað þyngdina varðar;) Og já ég skammast mín eins mikið og ég get....
04. febrúar 2009 klukkan 00:19
3
Eydís skrifar:
Ég tek hattinn ofan fyrir þér Gudda mín (ef ég væri með hatt) að koma svona útúr skápnum... ég vona að þú látir þér þetta að kenningu verða og hættir að eltast við Halldór Sigfússon, kt. 261078-4659, skóstærð 44, þyngd alltof mikið... ;)
04. febrúar 2009 klukkan 00:27
4
oggi gunn skrifar:
þetta var grín þú ert flottust
04. febrúar 2009 klukkan 00:34
5
Guðrún Ósk skrifar:
Ég veit ég veit....:D
04. febrúar 2009 klukkan 00:45
6
Ellan skrifar:
Úfff Gudda mín, að láta Halldór leiða þig svona villu þíns vegar. Ég myndi segja Bet frá þessu, þá skipar hún Halldóri pottþétt að kaupa ALLT sem þig langar í ;)
04. febrúar 2009 klukkan 08:36
7
Guðrún Ósk skrifar:
Humm kannski ekki svo vitlaus hugmynd þar á ferð;)
04. febrúar 2009 klukkan 10:03
8
Tóta skrifar:
eða segið bara Fúsa held að hann myndi líka alveg fara á flug ;) þannig Guðrún mín það er margt sem gæti hjálpað þér í þessari stöðu ;)
04. febrúar 2009 klukkan 11:27
9
Kolla skrifar:
ég vissi þetta, ekki þér líkt að gera svona hluti!
04. febrúar 2009 klukkan 13:15
10
Guðrún Ósk skrifar:
Nei ég veit, þetta var alveg úr karakter:)
04. febrúar 2009 klukkan 14:09
11
Gunni Sveins skrifar:
Djö... þoli ég það ekki þegar símar verða batteríslausir, minn er nefnilega svo gamall að hann verður alltaf rafmagnslaus. Annars held að það sé hægt að fá svona bagteríur í næstu símabúð.
04. febrúar 2009 klukkan 15:43
12
Kolla frænka skrifar:
æji elskan þú ert sko fórnarlamb Fúsa það sé eftir að hafa lesið raunar sðgu þína!
krúttið mitt passaðu þig á honum Fúsa!
love Kolla frænka
ég skal sko skamma hann Fúsa þegar þegar ég hitti hann næst !
06. febrúar 2009 klukkan 00:59
13
Kolla frænka skrifar:
Auðvita átti þetta að vera Dóra Fúsa sorry reddast núna hahah
06. febrúar 2009 klukkan 01:00

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Gagnasafn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...