STELA STELA STELAStóra Hrísamálið

Logi annað fórnarlambið í þessu máli kom með snilldartexta við ABBA lagið money money money og söng á söngvarakeppninni og sigraði ásamt lögreglukórnum.
Með þessu er talið að málinu sé formlega lokið en það er aldrei að vita hvort bangsinn Kútur eða varðhundurinn Assa bruggi glæponunum launráð.
Hér má sjá textann:
Á góðum stað í Víðidal.
er Hrísakot, já svaka slot.
Svaka slot.
Þar búa oggolítil hjón,
en ekki litla Gunna og Jón.
Gunna og Jón.
Aðkasti þau urðu var,
af glæpamönnum frá þessum stað.
Engan tóku peninginn,
með látum samt þau brutust inn.
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.
Er ábúendur komu heim,
þá heyrðist í þeim mikið kvein.
Mikið kvein.
Þar ótti og hræðsla tóku völd,
og nóttin var svo dimm og köld.
Dimm og köld.
Og lögreglan á svaka ferð,
brimklædd vopnum með skjöld og sverð.
Að minnsta kosti fjórir fimm,
því þjófum þarf að stinga inn.
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.
Mafían í Reykjavík,
hún getur verið engu lík.
Engu lík.
Því bréfum fór að senda þeim,
sem Þorgeir póstur fór með heim.
Fór með heim.
Hótað var hreinu ofbeldi,
spark í magann eða rassskelli.
Svo stóð með litlu áletri,
Frá Guðrúnu og Halldóri.
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar
Stela stela stela, pretta og vera svaka glæponar.
Aaaaaaaaaaaaa og það sem ég gæti gert
Ef ég næði í þessa dela, já og ég það skal.
Niðurstaða Aganefndar í Stóra HrísamálinuStóra Hrísamálið
Málavextir.
Sakborningarnir; Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Halldór Sigfússon.
Fórnarlömb; Elvar Logi Friðriksson og Fanney Dögg Indriðadóttir
Guðrún Ósk og Halldór óku dökkri Bensbifreið að bænum Hrísum í Fitjárdal, fóru þar inn í íbúðarhús í leyfisleysi, þar sem húsráðendur höfðu skroppið af bæ. Þegar inn var komið hófust þau handa við að máta nærföt af heimilsfólkinu, borðuðu allt kornflexið þeirra, földu fjarstýringar í nærfataskúffu Fanneyjar, gerðu tvo lítra að mjólk ódrykkjarhæfa með því að blanda út í hana appelsínusafa, stríddu hundinum Össu, prufuðu tannburstana og svona mætti lengi telja. Af þessu loknu héldu þau upp í hesthús þar sem versta verkið var unnið því þau styttu í ístöðunum á hnakknum hennar Fanneyjar.
Nokkrum dögum seinna sendu sakborningarnir bréf í pósti rituðu á erlendu tungumáli, það þótti Loga háalvarlegt mál þó hann skyldi ekki bréfið. Fékk þá Logi aðstoð, hringdi í Hemma heimskautabangsa, hann kom akandi á ofsahraða með blikkandi ljós í Hrísa og varð strax ljóst hve alvarleiki málsins væri mikill er hann skynjaði óttann og skelfinguna á andlitum heimilisfólksins. Hemmi las bréfið og skyldi ekkert frekar en Logi, en vissi að þetta var ekki gott því bréfið kom úr borg óttans (Reykjavík).
Játningar liggja fyrir hjá sakborningum og hafa þau beðist afsökunar og iðrast mjög að hafa hrætt heimilisfólkið að Hrísum þannig að þau sváfu ekkert í viku.
Niðurstaða
Að lokinni geðrannsókn sem leiddi í ljós að sakborningarnir eru vart sakhæf vegna greindarskorts og andlegs vanlíðan er ekki hægt að dæma þau til fullrar refsingar.
Og er því kröfu Gunnars Þorgeirssonar vísað frá enda krafa þessi afleiðing af þungu höfuðhöggi sem hann hlaut á heimili sínu seint í síðasta mánuði.
Dómur;
Nálgunarbann; Þurfa að halda sig að lámarki í 500 metra fjarlægð frá Hrísum.
Halldóri er gert skylt að keppa á öllum mótum Húnvetnsku liðakeppninnar.
Guðrúnu gert skylt að reyna að vera skemmtileg.
Þau í sameiningu skulu hreinsa upp allan skít af gólfi reiðhallar á meðan á mótum stendur í samráði við húsvörð eða mótsstjóra. Og sinna samfélagsþjónustu fyrir Hestamannfélagið Þyt allaf þegar þau eru beðin.
Brjóti þau gegn dómi þessum er hægt að grípa til þyngstu refsingar. Sem er flenging á opinberum vettvangi.
Að lokum;
Þá eiga öll dýrin í skóginum að vera vinir.
Aganefnd Húnvetnsku liðakeppninar 3. febrúar 2009
Kæru Þytsfélagar, Forseti Íslands og aðrir velunnararStóra Hrísamálið

Í ljósi liðinna atburða hef ég tekið ákvörðun sem er mér þvert um geð. Ég iðrast. Ég mun seint skilja hvaða gassagangur hljóp í mig laugardagskvöldið 24.jan sl. en það ætti öllum að vera ljóst að þarna var ekki ég að verki, heldur minn innri maður. Ég heiti því að eitthvað þessu líkt geri ég aldrei aftur í komandi framtíð, allavegana ekki á laugardeginum 24.janúar, en hann ku næst bera upp árið 2015 á mánudegi. Mér þykir afar leitt að hafa valdið vinum mínum, já eða fyrrum vinum mínum frá Hrísum II, þeim Elvari Loga Friðrikssyni kt. 300884-3939 og Fanney Dögg Indriðadóttur kt. 191186-3629 og fjölskyldum þeirra, ómældu tjóni jafnt andlega sem líkamlega og vona að það grói um heilt þegar fram líða stundir. Verst þykir mér þó að hafa afvegaleitt og flækt liðstjóra liðs 1, inn í málið. Eins og allir vita myndi hún allsgáð, ekki gera nokkrum manni mein en í sakleysi sínu og blindni fylgdi hún mér sem skugginn er við tróðum glapstíginn. Af þessu tilefni vil ég biðja foreldra hennar þau Steinbjörn Tryggvason kt. 170759-5089 og Elínu Írisi Jónasdóttur kt. 020363-7119, innilega afsökunar á hegðun minni og lofa að draga aldrei litla saklausa hjartagullið þeirra niður á mitt plan framar.
Ég hef ákveðið að gera allt til að leita sátta við guð og menn. Af því tilefni hef ég ákveðið að stíga til hliðar og setja sjálfan mig í ótímabundið agabann sem útilokar þátttöku mína í Húnvetnsku liðakeppninni. Ég tel að með þessu sé ég að axla ábyrgð bæði á gjörðum mínum í stóra Hrísamálinu og einnig þátt minn í íslenska bankahruninu. Ég veit að þetta eru gífurleg vonbrigði og mikið tjón fyrir mitt lið þar sem ég er nýfarinn að greina mun á brokki og tölti, en ég vona að liðsfélagar mínir virði þessa ákvörðun og veit það þetta kemur til með að jafna keppnina til muna.
Megi besta liðið vinna.
Virðingarfyllst,
Halldór Sigfússon
Kt. 261078-4659
Skóstærð: 44
Þyngd: Enn of mikil.
Yfirlýsing frá liðstjóra liðs IStóra Hrísamálið
Til þeirra er málið varðar, og já ykkar hinna sem eru búin að velta þessu til og frá í huga ykkar.
Ég sest hér niður með það eitt að leiðarljósi, að segja hlutina eins og þeir eru og alls ekki fela neitt. Vissulega er rétt að ég er brotleg í þessu máli og mun ég án efa sæta ábyrgðar áður en langt um líður. Mig langar hins vegar að útskýra aðeins hvað vakti fyrir mér þessa umræddu nótt og hvað varð til þess að ég lét tilleiðast að taka þátt í þessu sakamáli.
Það hefur eftir vill ekki farið fram hjá neinum að ég hef gengið með grasið í skónum á eftir Halldóri Sigfússyni, kt. 261078-4659, skóstærð 44, þyngd alltof mikið, síðan land byggðist. Í rælni minni og sakleysi hélt ég að þátttaka mín í þessum voðalega verknaði myndi fá hann til þess að sjá mig í öðru ljósi.
Þegar hann hafði samband við mig þetta umrædda kvöld var ég mjög veik fyrir, enda búin að horfa á heila tvo þætti af Bold and the Beautiful og orðin þess fullviss að ég myndi enda eins og Sally Spectra. Halldór bað mig að koma með sér í þennan leiðangur og vissulega hélt ég að um rómantískan bíltúr væri að ræða, en annað kom á daginn. Þegar hann gerði mér grein fyrir fyrirætlunum sínum þorði ég ekki annað en að leika með. Ég gerði mér ljóst að þarna var ég inni í afdölum, lokuð í litlum kofa með glæpamanni. Á þessum tímapunkti var ekki annað hægt, þetta var vissulega spurning um líf eða dauða, síminn minn var batteríslaus og inneignarlaus, svo mér voru öll sund lokuð. Eftir að glæpurinn var framinn lofaði hann mér öllu fögru, hann ætlaði að kaupa allt sem mig langaði í, bara svo lengi sem ég myndi þegja. Það hef ég og gert, en ekki enn farin að fá neitt af því sem mig langaði í.
Eftir að hafa skýrt út mína hlið á þessu máli vona ég heitt og innilega að þessu máli fari að ljúka. Fanney Dögg Indriðadóttir kt. 191186-3629 og Elvar Logi Friðriksson kt. 300884-3939 eru vonandi ennþá góðir vinir mínir og þykir mér mjög leitt að bera hluta ábyrgðar á öllum þeim kvölum sem þau hafa þurft að þola vegna þessa. Geri ég mér fyllilega grein fyrir að það hefur verið mikið sálarstríð sem þau hafa gengið í gegnum þessa daga áður en glæpurinn var upplýstur og vona ég að þau hafi fengið alla þá hjálp sem þau þurftu til að jafna sig á sál og líkama.
Virðingarfyllst
Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir
Kt. 2608853089
Skóstærð. 38-39
Þyngd. 52 kg
Hjúskaparstaða. EINHLEYP!!!!
Tilkynning frá mótanefnd Húnvetnsku Liðakeppninnar.Stóra Hrísamálið
Í ljósi þessa máls sem upp er komið, að lögð hefur verið fram kvörtun frá liði 3, vegna framferði ákveðinna einstaklinga (sem augljóslega tengjast þessari keppni) á síðustu dögum sjáum við okkur til neydd til að skipa aganefnd sem mun taka á þessu máli. Nefndin skal kveða upp úrskurð sinn innan 5 daga.
Skipaðir í aganefnd voru:
Indriði Karlsson, Grafarkoti liði 2
Sverrir Sigurðsson, Höfðabakka liði 1
Tryggvi Björnsson, Blönduósi (Víðdælingur) liði 3
Skrifað 01.02.2009 kl. 22:49
Stóra HrísamáliðStóra Hrísamálið
Þar sem tveir aðilar í liði 1 þau Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir kt 260885-3089 og Halldór Sigfússon kt. 261078-4659, hafa brotið svo gróflega af sér gegn friðhelgi einkalífsins hjá tveimur liðsfélögum í liði 3, þeim Elvari Loga Friðrikssyni kt. 300884-3939 og Fanney Dögg Indriðadóttur kt. 191186-3629, er þess krafist að lið 1 sæti ábyrgð í því máli. Má fullvíst telja að ótti þeirra og hræðsla gagnvart þessum keppendum sé slíkur að allt verði gert til að taka þau úr jafnvægi. Fyrsta krafa er sú að Guðrún segi af sér sem liðstjóri og hljóti keppnisbann í 1 mánuð og það sama gildi um Halldór, og að lið 1 hefji keppni með 50 refsistig.
Skilyrðislaus krafa okkar er því:
- að keppnisbannið taki gildi 12. febrúar 2009 og ljúki 12. mars 2009.
- og að lið 1 hefji keppni með 50 refsistig.
Óskum við eftir því að mál þetta fái flýtimeðferð hjá aganefnd deildarinnar.
Virðingafyllst.
Gunnar Þorgeirsson kt. 240767-5119 liðstjóri liðs 3
Skrifað 31.1.2009 kl. 15:42

